Rosa gallica

Ættkvísl
Rosa
Nafn
gallica
Íslenskt nafn
Skáldarós
Ætt
Rósaætt (Rosaceae).
Samheiti
R. provencialis Herrmann, R. rubra Lam., Rosa austriaca Crantz.
Lífsform
Lauffellandi runni.
Kjörlendi
Sól.
Blómalitur
Rósbleikur eða fagurrauður.
Blómgunartími
Ágúst.
Hæð
50-200 sm
Vaxtarlag
Lágvaxinn, uppréttur runni með rótarskot. Greinar 50-200 sm, grænar til daufrauðar með granna, mislanga, bogna eða stundum krókbogna þyrna með kirtilþornhár innan um. Axlablöðin með útstæða, ydda enda. Einblómstrandi.
Lýsing
Laufin sumargræn, smálaufin 3-5, (sjaldan 7), leðurkennd, breiðoddbaugótt til næstum kringlótt, ydd til snubbótt, dökkgræn og hárlaus ofan, hærð og með kirtla á neðra borði að minnsta kosti á æðastrengjunum, jaðrar með samsettar tennur, oft með kirtiltennur, er með stoðblöð. Blómstæði með leggjaða eða legglausa kirtla. Blómin stök eða stundum 2-4, einföld eða hálffyllt, ilmandi, ilma mikið, 4-8 sm í þvermál. Bikarblöð með nokkra hliðaflipa og með kirtla á ytra borði, aftursveigð og detta af að blómgun lokinni. Krónublöð rósbleik eða fagurrauð. Stílar ekki samvaxnir, ná ekki fram úr blóminu, fræni ullhærð. Nýpur hnöttóttar til sporvala, múrsteinsrauðar, litlar, um 1,3 sm, þéttkirtilþornhærðar.
Uppruni
S & M Evrópa, Litla Asía (Kákasus).
Sjúkdómar
Ónæm fyrir svartroti, mjölsvepp, ryðsvepp.
Harka
5
Heimildir
= 1, 2, http://www.welt-der-rosen,de/duftrosen/_duftrosen.htm, davesgarden.com/guides/pf/go/121/#b
Fjölgun
Sumar-, síðsumar- eða vetrargræðlingar, ágræðsla, brumágræðsla, sáningu.
Notkun/nytjar
Notuð stakstæð, í þyrpingar, í blönduð beð.
Reynsla
Nokkuð harðgerð og blómsæl tegund, sem hefur verið lengi í ræktun hérlendis.