Rosa helenae

Ættkvísl
Rosa
Nafn
helenae
Yrki form
'Hybrida'
Íslenskt nafn
Helenurós
Ætt
Rósaætt (Rosaceae).
Lífsform
Lauffellandi runni.
Kjörlendi
Sól.
Blómalitur
Ljósgulur.
Blómgunartími
Ágúst-september.
Hæð
- 400 sm
Vaxtarlag
Ekki vitað hvenær hún var kynbætt eða hver gerði það.Runni allt að 400 sm hár og 200 sm breiður, vöxtur kröftugur með marga, langa ársprota, allt að 200 sm langa og lengri þar sem loftslagið er hlýtt. Þyrnar margir og stórir. Lauf stór.
Lýsing
Blóm um 4 sm breið, ofkrýnd til hálffyllt, 9-16 krónublöð, ljósgul þegar þau springa út en lýsist og verður hvít. Ilmur sætur og sterkur, hunangsilmur. Blómin eru í klösum, 30-60 í hverjum. Runninn blómstrar einu sinni. Myndar mikið af skrautlegum nýpum.
Uppruni
Yrki.
Harka
Z5
Heimildir
http://www.hesleberg.no, www.helpmefind.com/rose/l.php?l=2.44094,
Fjölgun
Sumargræðlingar.
Notkun/nytjar
Sólríkur vaxtarstaður, mun þola dálítinn skugga. Miðlungi góður jarðvegur. Ein planta á m². Rosa helenae Hybrida er mjög mikils virði, hraust og blómviljug. Fín sem stakur runni, í limgerði og sem klifurrós (meira en 800 sm) á tígulgrind eða að hún klifrar upp trjástofn.Villta tegundin R. helenae er frá Kína.
Reynsla
Engin reynsla af þessari rós í Lystigarðinum.