Rosa hemsleyana

Ættkvísl
Rosa
Nafn
hemsleyana
Íslenskt nafn
Skýjarós
Ætt
Rósaætt (Rosaceae).
Lífsform
Lauffellandi runni
Kjörlendi
Sól.
Blómalitur
Bleikur.
Blómgunartími
Júlí-ágúst.
Hæð
- 200 sm
Vaxtarlag
Villirós. Runninn verður um 200 sm hár, einblómstrandi. Stilkar eru aðeins lítið eitt þyrnóttir, þyrnar stuttir, beinir og með breiðan grunn. Smálauf 7-9, oddbaugótt, 2-5 sm löng, tvísagtennt og kirtilsagtennt, hárlaus neðan eða með hæringu á æðastrengjunum. Axlablöð breið, kirtilrandhærð, miðstrengur kirtilhærður.
Lýsing
Blómin 3-11, bleik, 3-5 sm breið og með daufan ilm. Blómleggir 1-3 sm langir, þétt kirtilþornhærðir. Bikarblöð með rófu og breiðan, sagtenntan odd. Nýpur langegglaga með langan háls, 2,5 sm langar, appelsínurauðar.
Uppruni
N og M Kína.
Harka
Z6
Heimildir
1, Krüssmann, G. 1978: Handbuch der Laubgeholze. Band III Berlin - Hamburg, http://www.welt-der-rosen,de/duftrosen/_duftrosen.htm, www.pfaf.org/user/Plant.aspx?LatinName=Rosa+hemsleyana
Fjölgun
Sáning, Síðsumargræðlingar með hæl, rótarskot, sveiggræðsla 8tekur 12 mánuði).
Notkun/nytjar
Rosa hemsleyana er náskyld R. setipoda og til eru þeir sem álíta að best sé að telja hana form af R. sedipoda. Munurinn er sá að R. hemsleyana er lágvaxnari (verður 200 sm há), og bikarblöð eru með hliðarflipa.
Reynsla
Rosa hemsleyana var keypt í Lystigarðinn 1994 og gróðursett í beð sama ár, kelur lítið, þrífst vel og vex vel, blómstrar mikið og myndar eldrauðar nýpur.