Rosa macrophylla

Ættkvísl
Rosa
Nafn
macrophylla
Íslenskt nafn
Flöskurós
Ætt
Rósaætt (Rosaceae).
Lífsform
Lauffellandi runni.
Kjörlendi
Sól-(hálfskuggi).
Blómalitur
Millibleikur eða djúpbleikur til blápurpura.
Blómgunartími
Júlí-ágúst.
Hæð
-250-400(-500) sm
Vaxtarlag
Runninn verður 250-400(-500) sm hár og er með langar, bogsveigðar greinar, stilkar eru dökkrauðir til purpuralitir, þyrnalausir eða með fáa sterklega, beina þyrna sem vita upp á við, oft í pörum á liðunum. Axlablöð venjulega breið.
Lýsing
Smálauf (7-)9-11 talsins, 2,5-6,5 sm, breið-oddbaugótt til mjó-egglaga, ydd eða odddregin, hárlaus á efra borði, dúnhærð og stundum kirtilhærð á neðra borði, jaðrar með einfaldar tennur eða tvísagtenntir. Stoðblöð breið. Blómleggir og blómbotn með kirtilþornhár. Blóm 1-5, einföld, millibleik eða djúpbleik til blápurpura, 5-7,5 sm breið. Bikarblöð næstum jafnlöng og krónublöðin, heilrend, þornhærð og dálítið kirtilhærð á bakhliðinni, breikka í oddinn, upprétt og langæ á nýpunni. Stílar lausir, ekki framstæðir, fræni ullhærð. Nýpur 2,5-4(-7) sm, hálfhnöttóttar til flöskulaga með háls efst, hárauðar og með kirtilþornhár.
Uppruni
Himalaja frá Pakistan austur til V Kína.
Sjúkdómar
Viðkvæmur fyrir hunangssvepp.
Harka
Z7
Heimildir
1, Krüssmann, G. 1978: Handbuch der Laubgeholze. Band III Berlin - Hamburg, davesgarden.com/guides/pf/go/168822/#b, www.pfaf.org/user/Plant.aspx?LatinName=Rosa+macrophylla
Fjölgun
Sáning, sumar-, síðsumar- eða vetrargræðlingar, ágræðsla, brumágræðsla, sveiggræðsla (tekur 12 mánði).
Notkun/nytjar
Í blönduð trjá- og runnabeð.
Reynsla
Flöskurósinni hefur tvisvar verið sáð í Lystigarðinum, annarri var sáð 1989 og plantað í beð 1994, hinni var sáð 1990 og plantað í beð 1992. Báðar kólu mikið og voru dauðar 2008. Ein planta sem sáð var 1990 og var plantað í beð 1993 vex þó vel, engin blóm 2009.