Rosa moyesii

Ættkvísl
Rosa
Nafn
moyesii
Yrki form
'Eos'
Höf.
(Ruys 1950) Holland.
Íslenskt nafn
Meyjarós
Ætt
Rósaætt (Rosaceae).
Lífsform
Lauffellandi runni.
Kjörlendi
Sól og skjól.
Blómalitur
Kirsuberjarauður.
Blómgunartími
Júlí-ágúst.
Hæð
- 240-300 sm
Vaxtarlag
Foreldrar:: R. moyesii Hemsley & Wilson X R. Magnifica. Þetta er R. moyesii blendingur. Kröftug runnarós/klifurrós, en nokkuð gisin í vextinum, verður allt að 300 sm há og 150 sm breið eða meir.
Lýsing
Blómin eru einföld-hálffyllt, dökk kirsuberjarauð með hvíta miðju og hring af gulum fræflum, nokkur saman á greinunum. Blómstrar mikið um hásumarið hérlendis, blómin ilma mikið. Laufin smá-meðalstór og fínleg (burknakennd), dökkgræn-græn. Eos myndar nýpur aðeins í köldu loftslagi, sem eru flöskulaga og appelsínurauðar.
Uppruni
Yrki.
Harka
Z5
Heimildir
Moughan, P. et al. Ed.: The Encyclopedia of RosesNicolaisen, 1975: Rosernas Bog - København, http://www.backyardgardener.com, http://www.haveabc.dk, http://www.welt-der-rosen,de/duftrosen/_duftrosen.htm,davesgarden.com/guides/pf/go/52452/#b
Fjölgun
Síðsumargræðlingar með hæl, skifting á rótarskotum þegar plantan er í dvala, sveiggræðsla, tekur 12 mánuði.
Notkun/nytjar
Ræktuð á sólríkum stað.Samkvæmt einni goðsögn átti gyðja morgunroðans, Eos, að verða eftir á jörðinni í formi rósar þ. e. leifar af fyrsta morgunroðanum.
Reynsla
Rosa moyesii Eos hefur verið fjölmörg ár í Lystigarðinum og er planta frá 1956 eða eldri, stór runni sem þrífst vel og blómstrar mikið og myndar nýpur.