Rosa nitida

Ættkvísl
Rosa
Nafn
nitida
Yrki form
'Red Hedge'
Höf.
Nijveldt 1958, Holland.
Íslenskt nafn
Brúðurós
Ætt
Rósaætt (Rosaceae).
Lífsform
Lauffellandi runni.
Kjörlendi
Sól.
Blómalitur
Rauðbleikur.
Blómgunartími
Júlí-ágúst.
Hæð
30-40 sm
Vaxtarlag
Rosa nitida 'Red Hedge' er ef til vill blendingur R. nitida x (Rosa cinnamomea x R. rugosa), annars er litlar upplýsingar að hafa um þetta yrki. Þéttur, uppréttur runni, 30-40 sm hár. Laufið dökkgrænt, glansandi.
Lýsing
Blómin rauðbleik, ilmandi. Nýpur rauðar.
Uppruni
Blendingur / yrki.
Harka
Z3
Heimildir
www.helpmefind.com/rose/l.php?1=2.29397.0, davesgarden.com/guides/pf/go/81620/#b, www.weasdale.com/index.php?page=shop.product-details&flypage=&product-id=1949&category-id=10&option=com,
Fjölgun
Skifting á rótarhnausnum. Sumar-, síðsumar- eða vetrargræðlingar.
Notkun/nytjar
Í beðkanta.
Reynsla
Plöntu með þessu nafni var sáð í Lystigarðinum 1992, plantað í reit 1994 og í beð 2000, kelur lítið.