Rosa pendulina

Ættkvísl
Rosa
Nafn
pendulina
Yrki form
'Alba'
Íslenskt nafn
Fjallarós
Ætt
Rósaætt (Rosaceae).
Lífsform
Lauffellandi runni.
Kjörlendi
Sól.
Blómalitur
Hvítur.
Blómgunartími
Júlí-ágúst.
Hæð
100-150 sm
Vaxtarlag
Villirós, einlend. Runninn er 100-150 sm hár, einblómstrandi, greinar oftast rauðleitar en einnig líka grænar, oft alveg þyrnalausar (!). Greinar bogsveigðar, hangandi, næstum þyrnalaus, aðeins óveruleg þyrnamyndun neðst. Skríður með neðanjarðarrenglur
Lýsing
Smálauf 5-9, lang-egglaga, 2-6 sm löng, tví-kirtilsagtennt, hærð bæði ofan og neðan, stundum líka hárlaus. Blómin 1-5, en oftast bara stök, hvít, allt að 4 sm breið og með reykelsisilm. Bikarblöð langæ, upprétt. Nýpur fjölmargar, glansandi, egglaga til flöskulaga, ljós- til dökkrauðar, 3 sm langar hangandi, oft álút og hárlausar. Nýpurnar innihalda aðeins lítið af hærðum smáhnetum.
Uppruni
Fjöll S & M Evrópu.
Harka
Z5
Heimildir
1, Krüssmann, G. 1978: Handbuch der Laubgeholze. Band III Berlin - Hamburg, http://www.welt-der-rosen,de/duftrosen/_duftrosen.htm,
Fjölgun
Græðlingar.
Notkun/nytjar
Runninn er notaður í limgerði, þyrpingar, stakstæður og í blönduð beð. Fallegur garðrunni að hausti og vetrinum til, mjög frostþolinn.
Reynsla
Harðgerð rós, vindþolin og nægjusöm, þarf að grisja reglulega.