Rosa pimpinellifolia

Ættkvísl
Rosa
Nafn
pimpinellifolia
Yrki form
'Lutea'
Höf.
(Bean)
Íslenskt nafn
Þyrnirós
Ætt
Rósaætt (Rosaceae).
Lífsform
Lauffellandi runni.
Kjörlendi
Sól.
Blómalitur
Ljósgul.
Blómgunartími
Júlí-ágúst.
Hæð
Allt að 100 sm
Vaxtarlag
Uppruni óþekktur. Ef til vill er þetta blendingur. Villirós. Runninn er um 90 sm hár, einblómstrandi. Smálauf breið-oddbaugótt, allt að 2,5 sm löng, ögn hærð á neðra borði. Blóm ljósgul með daufan ilm.
Lýsing
Sjá hjá aðaltegundinni.
Uppruni
Yrki.
Harka
H2
Heimildir
2, Krüssmann, G. 1978: Handbuch der Laubgeholze. Band III Berlin - Hamburg, http://www.welt-der-rosen,de/duftrosen/_duftrosen.htm
Fjölgun
Vetrar- og sumargræðlingar.
Notkun/nytjar
Rósin er notuð í limgerði, þyrpingar, stakstæð og í blönduð beð.
Reynsla
Kelur talsvert og blómstrar lítið. Hefur (2009 eða fyrr) orðið undir í samkeppninni við aðrar stærri rósir. ATH.: Myndirnar eru af íslensku þyrnirósinni í Lystigarðinum, ekki Rosa pimpinellifolia 'Lutea'.