Rosa pouzinii

Ættkvísl
Rosa
Nafn
pouzinii
Íslenskt nafn
Kvoðurós
Ætt
Rósaætt (Rosaceae).
Samheiti
Crepinia pouzinii (Tratt.) Gand., Rosa canina ssp. pouzinii (Tratt.) Batt., R. communis ssp. pouzinii (Tratt.) Rouy. (nom. illeg., R. glauca ssp. pouzinii (Trat.) Christ., Rosa hispanica Boiss. & Reut., non Mill.
Lífsform
Lauffellandi runni.
Kjörlendi
Sól.
Blómalitur
Fölbleikur.
Blómgunartími
Júlí-ágúst.
Hæð
50-200(-300) sm
Vaxtarlag
Runni 50-200(-300) sm hár. Greinar uppréttar eða bogsveigðar, greiningin breytileg, Greinar græn-rauðleitar yst á runnanum og efst, þyrnalaus eða oftar með þyrnum, 3-8(10 x 3-5 (7) mm, sem eru líkir innbyrðis en breytileg að stærð, bognir eða næstum krókbognir, oftast ekki legghlaupnir, kringlóttir eða oddbaugóttir í þversnið.
Lýsing
Lauf með dálítinn balsamilm og með 0-1(2) þyrna undir axlablöðunum; smálauf 5-7(9) talsins, (12)14-28(37) × (8)10-18(26) mm, egglaga-kringluleit til öfugegglaga eða egg-lensulaga, ögn hvassydd, bogadregin við grunninn, efra borð hárlaus og skærgræn, hárlaus á neðra borði, ljósbláleit með kirtla aðeins á miðstreng og stundum á hliðarstrengjum, tvísagtennt og skerðingar oftast djúpar og mjóar, með 0-2 kirtla á langhliðinni og 2-3(-5) við grunninn. Laufleggir hárlausir með kirtilaxlablöð og smáþornhár, sem stundum ná niður á aðallegginn, efri axlablöð 8-11(12) × 3-6(7) mm, ögn breiðari í miðjunni, hárlaus á efra borði laufsins (þess sem snýr að stilknum) stundum með kirtla á neðra borðinu, jaðrar kirtilhærðir, og axlablöð egg-lensulaga, ydd og beinast ögn út á við. Blóm 1-3 í blaðöxlum, efsta laufið oft smækkað í eitt smálauf, sjaldan í stoðblað, 8-10 × 3-5 mm, egglensulaga, styttri en blómleggirnir; visin af fyrir þroska hjúpanna. Blómleggur (12)15-20 mm langir, með kirtilhærð axlablöð og stundum með smáþyrnum. Blómbotn með disk (2,5)2,8-3,7(4) mm í þvermál, dálítið keilulaga; opið 0,5-0,8 (1) mm. Bikarblöð (12)15-20 × (0,5)3-4,5 mm, lensulaga, hærð á innra borði og jöðrum, með kirtlilhár á baki, aftursveigð að blómgun lokinni; visna af fyrir þroska nýpunnar, stöku sinnum með 6-10(-12) hliðarflipa, á bilinu 3,5-4 × 0,4-0,6 mm; oddurinn 4-6 × 0,5 mm. Krónan 20-40 mm í þvermál. Krónublöð 12-20 × 10-15 mm, um það bil jafn löng og bikarblöðin, breið, fölbleik. Frævur lausar hver frá annarri, sjaldan hærðar, mynda samaldin (hjúpaldin=nýpu), fræni öfug-keilulaga 0,7-1,3 mm. Nýpa (10)12-19(22) × 7-11 mm, oftast krukkulaga. slétt og með fáeina kirtlar við grunninn, dumbrauðar.
Uppruni
Portúgal, Spánn, Frakkland, Ítalía, austurhluti N-Afríku.
Heimildir
http://ww2bgbm.orghttp://www.floraiberica.es/floraiberica/texto/pdfs/06
Fjölgun
Sáning, brumágræðsla.
Notkun/nytjar
Í beðkanta.
Reynsla
Kvoðurósinni var sáð í Lystigarðinum 1991, plantað í reit 1994, hefur kalið mikið öll árin, plantað í beð 2009.