Rosa rubiginosa

Ættkvísl
Rosa
Nafn
rubiginosa
Íslenskt nafn
Eplarós
Ætt
Rósaætt (Rosaceae).
Samheiti
Rosa eglanteria L.
Lífsform
Lauffellandi runni.
Kjörlendi
Sól - léttur hálfskuggi.
Blómalitur
Bleikur.
Blómgunartími
Júlí-ágúst.
Hæð
Allt að 120 sm
Vaxtarlag
Villirós sem hefur verið í ræktun frá því fyrir 1550. Harðgerður runni sem verður um 120 sm hár og 100 sm breiður, einblómstrandi, þyrnar kröftugir og bognir.
Lýsing
Blóm bleik með mjög mikinn eplailm. Hjúpar fjölmargir, litlir, egglaga, appelsínugulir til skærrauðir og ögn þornhærðir.
Uppruni
Evrópa og NV Afríka
Sjúkdómar
Viðkvæm fyrir hunangssvepp.
Harka
4
Heimildir
= 1, http://www.hesleberg.no, http://www.welt-der-rosen,de/duftrosen/_duftrosen.htm, www.pfaf.org/user/plant.aspx?LatinName=Rosa+rubiginosa
Fjölgun
Sáning, síðsumargræðlingar með hæl, vetrargræðlingar, skifting á rótarskotum, sveiggræðsla (tekur 12 mánuði).
Notkun/nytjar
Sólríkur vaxtarstaður. Flott rós í stóra garða sem líka er hægt að nota staka.
Reynsla
Eplarósin kom í Lystigarðinn 1982 og gróðursett í beð sama árið, flutt í annað beð 1992. Kelur lítið, blómstrar og þroskar nýpur. Henni var aftur sáð 1989 og plantað í reit 1994, hefur kalið mikið þar öll árin til 2009.