Rosa rugosa

Ættkvísl
Rosa
Nafn
rugosa
Yrki form
'Polareis'
Höf.
(Strobel 1991) Þýskaland
Íslenskt nafn
Ígulrós (garðarós)
Ætt
Rósaætt (Rosaceae).
Samheiti
Rosa rugosa Polar Ice.
Lífsform
Lauffellandi runni.
Kjörlendi
Sól.
Blómalitur
Bleikhvítur / rjómalitur.
Blómgunartími
Ágúst-september.
Hæð
50-80 (150-200) sm
Vaxtarlag
Þetta er R. rugosa blendingur, áberandi síblómstrandi runni, harðgerður sem verður 50-80 (150-200) sm hár og er einn af athygliverðustu, kröftugustu og þéttvöxnustu ígulrósarafbrigðunum sem til er. Runninn hefur til að bera alla bestu eiginleika ígulrósanna. Einblómstrandi en stöku blóm koma þó seint á sumrinu.
Lýsing
Blómin eru bleikhvít, fyllt, með 25 krónublöð, ilma mikið, nokkur saman, ögn álút, knúbbar grænir. Blómin eru rjómalit þegar þau springa út, verða með skeljableik krónublöð og dýpri bleikan lit í miðjunni. Blómin eru með léttan ilm af barnapúðri og ný, glansand gulgræn lauf sem ilma eins og jarðarber. Haustlitir fallegir og laufið verður skærgulast af laufi allra ígulrósa. Engar nýpur.
Uppruni
Yrki.
Sjúkdómar
Ónæm fyrir kvillum.
Harka
Z2
Heimildir
http://www.finegardening.comhttp://www.highcountryroses.comhttp://www.pickeringnurseries.comhttp://www.smul.sachsen.dehttp://www.welt-der-rosen,de/duftrosen/_duftrosen.htm,www.cornhillnursery.com/retail/roses/rosea.htlm#RP,www.helpmefind.com/rose/pl.php?n=51173
Fjölgun
Hægt er að fjölga rósinni með því að stinga sundur rótarskot, eins þétt upp við móðurplöntuna og hægt er með beittum spaða að haustinu. Látið rótarskotið vera á sínum stað til næsta vors en á þeim tíma hefur það myndað sínar rætur og þá er hægt að flytja nýju plöntuna á betri stað.
Notkun/nytjar
Í blönduð beð, í kanta, í stóra garða.Sólríkur vaxtarstaður sem loftar vel um. Rósin þarf frjóan jarðvegur og vel framræstan. Gott er að bæta safnhaugamold ofan á jarðveginn eftir að rósin hefur verið sett niður og svo haust og vor eftir það.
Reynsla
Rosa Polareis var keypt 2003 og gróðursett í beð sama ár. Þrífst vel og blómstrar mikið. Kelur lítilsháttar.