Rosa sherardii

Ættkvísl
Rosa
Nafn
sherardii
Íslenskt nafn
Dúnrós
Ætt
Rósaætt (Rosaceae).
Lífsform
Lauffellandi runni.
Kjörlendi
Sólríkur vaxtarstaður.
Blómalitur
Dökkbleikur.
Blómgunartími
Ágúst-september.
Hæð
Allt að 200 sm
Vaxtarhraði
Hraðvaxta.
Vaxtarlag
Þéttur, allt að 200 m hár runni, bládöggvaður þegar hann er ungur. Greinar oft bognar í ýmsar áttir, þyrnar oft mjög bognir. Smálauf (3-)5-7, breið-egglaga til oddbaugótt, oft hærð bæði ofan og neðan, bláleit á neðra borði og flókahærð, tvísagtennt. Með stoðblöð.
Lýsing
Blómbotn kirtil-þornhærður. Blómin oftast mörg, einföld, dökkbleik, 3-5 sm breið, bikarblöð með hliðarflipa, kirtilhærð á bakhliðinni, upprétt og langæ. Nýpur egglaga-spólulaga, 1,2-2 sm breiðar, rauðar, kirtilþornhærðar.
Uppruni
N & A Evrópa.
Harka
Z5
Heimildir
1, Krüssmann, G. 1978: Handbuch der Laubgeholze. Band III Berlin - Hamburghttp://www.welt-der-rosen,de/duftrosen/_duftrosen.htm, www.findmeplants.co.uk/plant-rosa-sherardii-1629.aspx,en.hortipedia.com/wiki/Rosa-sherardii
Fjölgun
Græðlingar.
Notkun/nytjar
Klifurrunni, í limgerði, sem skjólbelti, í trjá- og runnabeð.Þolir allt að -29°C.
Reynsla
Dúnrósinni var sáð í Lystigarðinum 1986 og plantað í beð 1988. Kelur mismikið, fremur lítið í seinni tíð. Vex vel engin blóm 2009.