Rosa sicula

Ættkvísl
Rosa
Nafn
sicula
Íslenskt nafn
Svarðrós
Ætt
Rósaætt (Rosaceae).
Lífsform
Lauffellandi runni.
Kjörlendi
Sólríkur vaxtarstaður í skjóli fyrir næðingum.
Blómalitur
Ljósbleikur.
Blómgunartími
Ágúst-september.
Hæð
20-80 sm
Vaxtarlag
Lágvaxinn, þéttgreindur runni, 20-80 sm hár, með rótarskot. Þyrnar beinir eða ögn bognir, grannir, allir næstum jafn langir, kirtil-þornhár innanum þyrna. Ungar greinar rauðar. Einblómstrandi.
Lýsing
Smálauf 5-9, breið-egglaga til kringlulótt, 0,6-2 sm löng, hárlaus, en eru þó kirtilhærð á neðra borði, ilma dálítið. Jaðrar kirtil-sagtenntir. Blómin stök, ljósbleik, 2,5-3 sm breið með mildan ilm. Bikarblöðin langæ, hanga áfram á nýpunni. Nýpurnar egglaga, 1-1,3 sm langar, rauðar.
Uppruni
S Evrópa, N Afríka.
Harka
Z8
Heimildir
1, Krüssmann, G. 1978: Handbuch der Laubgeholze. Band III Berlin - Hamburg, www.helpmefind.com/rose/pl.php?n=56135, www.actahort.org/members/showpdf?booknrarnr=1064-2
Fjölgun
Sáning, síðsumargræðlingar með hæl.
Notkun/nytjar
Í beðkanta.
Reynsla
Svarðrósinni var sáð í Lystigarðinum 1991 og plantað í beð 1994. Kelur lítið eitt, stundum mikið framan af. Lítil, fínleg planta 2008, með blóm.