Rosa x alba

Ættkvísl
Rosa
Nafn
x alba
Yrki form
'Incarnata'
Íslenskt nafn
Bjarmarós
Ætt
Rósaætt (Rosaceae).
Samheiti
Rétt nafn: R. 'Cuisse de Nymphe Emué', Rosa alba rubicunda, Rosa carnea, R. rubicans.
Lífsform
Lauffellandi runni.
Kjörlendi
Sól og skjól.
Blómalitur
Hvítur.
Blómgunartími
Ágúst-september.
Hæð
Allt að 250 sm
Vaxtarlag
Uppréttur runni, næstu þyrnalaus, allt að 250 sm hár og 150 sm í þvermál, greinar bogsveigðar. Lauf meðalstór, hálfglansandi, dökkgræn með 5-7 smálauf.
Lýsing
Blóm hálffyllt ilma mikið, með allt að 50 krónublöð, oftast stök, geta verið í klösum. Einblómstrandi.
Uppruni
Yrki.
Sjúkdómar
Viðkvæm fyrir mjölsvepp.
Harka
4
Heimildir
1, www.helbmefind.com/rose/pl.php?n=11321,
Fjölgun
Síðsumargræðlingar með hæl, vetrargræðlingar með hæl, ágræðsla, brumágræðsla.
Notkun/nytjar
Í beð á sólríkum stað.
Reynsla
Hefur verið í Lystigarðinum og þrifist vel, er til í görðum á Akureyri, þrífst vel og blómstrar mikið.