Rosa x alba

Ættkvísl
Rosa
Nafn
x alba
Yrki form
'Minette'
Höf.
Vibert 1819.
Íslenskt nafn
Bjarmarós
Ætt
Rósaætt (Rosaceae).
Lífsform
Lauffellandi runni.
Kjörlendi
Sól og skjól.
Blómalitur
Bleikur.
Blómgunartími
Ágúst-september.
Hæð
- 120 sm
Vaxtarlag
Rósarunni og R. alba rós. Þetta er ekki dæmigerð R alba rós aðeins 120 sm há í mesta lagi og með ljósgræn lauf, ekki grágræn eins og venjulegt er hjá R alba rósum.
Lýsing
Bleik blómin eru mjög þéttfyllt með þunn krónublöð sem eru límkennd í votviðri. Ef það rignir þegar runninn er að blómstra myndar hann aðeins rotna knúbba. Að öðrum kosti springa blómin út og eru með mjög sérstakan, himneskan ilm. Runninn blómstrar einu sinn á sumri og er mjög harðgerður.
Uppruni
Yrki.
Sjúkdómar
Viðkvæm fyrir svartroti, ryðsvepp, mjölsvepp.
Heimildir
http://www.roseexpert.no/nordic.htm,thegardengeeks.net/plant-guide?sid=5867:Rosa-alba-maxima&pid=60
Fjölgun
Sumar-, síðsumargræðlingar með hæl, brumágræðsla að að sumrinu.
Notkun/nytjar
Fyrir löngu var þessi rós kölluð Rosa Suionum; þ. e. rós Svíþjóðar. Helmut Merker nafngreindi rósina 1984 sem 'Minette'. Rósin var líka algeng vinsæl í Finnlandi og þar var hún kölluð "mustialrose". Hún hefur líka fundist í gömlum görðum í Noregi og þess vegna hlýtur hún að hafa verð notuð mikið á Norðurlöndunum öldum saman.
Reynsla
Rosa x alba Minette' var keypt í Lystigarðinn 2003 og gróðursett í beð 2004, var mjög mikið kalin 2009 en óx mikið og blómstraði 2009.