Rosa x gallica

Ættkvísl
Rosa
Nafn
x gallica
Yrki form
'Complicata'
Íslenskt nafn
Skáldarós
Ætt
Rósaætt (Rosaceae).
Samheiti
Rosa gallica v. complicata , Rosa gallica complicata , Rosa macrantha.
Lífsform
Lauffellandi runni.
Kjörlendi
Sól.
Blómalitur
Skærbleikur.
Blómgunartími
Ágúst-september.
Hæð
Allt að 250 sm
Vaxtarlag
Óþekktur uppruni og upprunaár er óþekkt. Stór og kröftugur runni 250 sm hár og 300 sm breiður, fáir þyrnar, einblómstrandi. Með langar greinar sem hægt er að klippa í súluform.
Lýsing
Blómin einföld, stór alt að 11 sm í þvermál, rósbleik með hvíta miðju og fallega, áberandi, gula fræfla. Ilmur daufur. Nýpur stórar, sléttar, hnöttóttar, appelsínugular.
Uppruni
Yrki.
Sjúkdómar
Ónæm fyrir svartroti, mjölsveppur, ryðsveppur.
Harka
Z5
Heimildir
Nicolaisen, A 1975: Rosernas Bog - København, Roy, Hay & Patrick Synge 1969: The Dictionary of Garden Plants in Colour with House and Greenhouse Plants. - George Rainbird LTD 1969 (Svensk översättninga och bearbetning Sven Nilson 1974. Örebro 1974), http://www.hesleberg.no, http://www.welt-der-rosen,de/duftrosen/_duftrosen.htm, davesgarden.com/guides/pf/go/2523/#b, https://www.rhs.org.uk/plants/98520/Rosa-Complicata-%28G%29/Details
Fjölgun
Skifting á gömlum plöntum, þegar þær eu í dvala, síðsumargræðlingar með hæl eða brumágræðsla að sumrinu.
Notkun/nytjar
Notuð stök, nokkrar saman, í beð, í limgerði, á grindur og súlur.Rósin þarf nákvæma klippingu og snyrtingu og gott vaxtarrými til að njóta sín sem best. Hæfilegt að hafa 1 plöntu á m². Talin skuggþolin erlendis.
Reynsla
Rosa × gallica 'Complicata' var sáð í Lystigarðinum 1992 og 1993. Plönturnar kala mikið og sumar hafa drepist, tvær plöntur eru til, báðar lélegar, en lifa og vaxa mikið.