Rubus odoratus

Ættkvísl
Rubus
Nafn
odoratus
Íslenskt nafn
Ilmklungur
Ætt
Rósaætt (Rosaceae).
Lífsform
Lauffellandi runni.
Kjörlendi
Sól, hálfskuggi, skuggi.
Blómalitur
Purpurarauður.
Blómgunartími
Júlí til september.
Hæð
100-150 sm (-300 sm)
Vaxtarlag
Kröftugur, lauffellandi runni, allt að 3 m hár. Stönglar trjákenndir, uppréttir með mjög ljós brúna, börk sem flagnar, með kirtla, dúnhærðir, ekki með þornhærð.Þyrnalaus m/uppréttar kirtilhærðar greinar, endurnýjar sig með rótarskotum og myndar mikið þykkni af greinum sem smám samam þekja stærðar svæði
Lýsing
Lauf óskift, allt að 25 sm, 5-flipótt, hjartalaga við grunninn, sagtennt, dúnhærð á neðra borði. Blómin ilmandi, bleik-purpura, allt að5 sm í þvermál, í margblóma skúf, bikarblöð odddregin, krónublöð breið, snubbótt. Aldin flöt og breið, rauð eða appelsínugul, með lítil, dúnhærð steinaldin.
Uppruni
A N-Ameríka.
Harka
3
Heimildir
1
Fjölgun
Skifting, sumargræðlingar, rótarskot.
Notkun/nytjar
Undirgróður undir tré, í þyrpingar, í raðir.
Reynsla
Meðalharðgerður-harðgerður runni, má klippa alveg niður árlega.
Yrki og undirteg.
Rubus odoratus 'Albus' er með með hvít blóm, ljósari blöð og ennþá ljósari börk.