Rudbeckia hirta

Ættkvísl
Rudbeckia
Nafn
hirta
Íslenskt nafn
Stráhattur
Ætt
Körfublómaætt (Asteraceae).
Lífsform
Tvíær-fjölær, skammlíf.
Kjörlendi
Sól, skjól.
Blómalitur
Fölgulur.
Blómgunartími
Júlí-september.
Hæð
60-100 sm (allt að 200 sm).
Vaxtarlag
Tvíær eða skammlíf fjölær jurt, allt að 200 sm há.
Lýsing
Lauf allt að 10 sm, mjó-lensulaga eða öfuglensulaga, oftast með 3 rif, heilrend eða með strjálar tennur, með legg. Karfan stök á löngum legg, blómbotn keilulaga, reifablöð stinnhærð. Geislablóm allt að 4 sm, fölgul, dekkri við grunninn, hvirfingablóm purpurabrún. Enginn svifhárakrans.
Uppruni
M Bandaríkin.
Harka
4
Heimildir
1
Fjölgun
Sáning, skipting.
Notkun/nytjar
Skammlíf í ræktun, ræktuð af og til sem sumarblóm.
Reynsla
Hefur reynst þokkalega sem sumarblóm, lifir yfirleitt ekki af næsta vetur.
Yrki og undirteg.
Nokkur yrki í ræktun erlendis. T.d. 'Gloriosa', 'Golden Flame', 'Green Eyes', 'Kelvedon Star' ofl.