Salix apoda

Ættkvísl
Salix
Nafn
apoda
Íslenskt nafn
Kákasusvíðir
Ætt
Víðiætt (Salicaceae).
Lífsform
Lauffellandi runni.
Kjörlendi
Sól.
Blómalitur
Kvenreklar gráir, karlreklar appelsínugulir eða bleikir.
Blómgunartími
Vor.
Hæð
15-30 sm stundum hærri.
Vaxtarhraði
Hægvaxta.
Vaxtarlag
Líkur sólvíði (S. hastata).
Lýsing
Laufin eru meira öfugegglaga, skærgræn ofan, laufleggir allt að 5 mm löng. Axlablöð stundum nýrlaga.&
Uppruni
N M-Evrópa, Kákasus.
Harka
Z6
Heimildir
= 1, plantlust.com/plants/Salix-apoda, davesgarden.com/guides/pf/go/162931/#b
Fjölgun
Sumar- og vetrargræðlingar. Plantið með 90-120 sm millibili.
Notkun/nytjar
Í beð, í steinhæðir, sem þekjurunni.
Reynsla
Í Lystigarðinum eru tvær plöntur undir þessu nafni, ein karlplanta frá 1998 og önnur planta 1993, hvorug kelur.