Salix arbusculoides

Ættkvísl
Salix
Nafn
arbusculoides
Íslenskt nafn
Lækjavíðir
Ætt
Víðiætt (Salicaceae).
Lífsform
Lauffellandi runni eða tré.
Kjörlendi
Sól.
Blómgunartími
Vor.
Hæð
3-4 m
Vaxtarlag
Lauffellandi runni eða tré, allt að 3-4 m hátt. Ársprotar rauðleitir, glansandi, hárlausir.
Lýsing
Lauf oddbaugótt til oddbaugótt-lensulaga, hvassydd, oftast fíntennt og reglulega sagtennt, smá-silkihærð neðan, með stutt, hvít, aðlæg hár. Reklar dúnhærðir, koma um leið og laufin, með 2-3 lítil lauf á stuttum blómskipunarlegg. Fræhýði dúnhærð, stoðblöð svartleit, dúnhærð. Stílar um 0,8 mm langir, fræflar 2, frjóþræðir hárlausir.&
Uppruni
Alaska.
Heimildir
= 23
Fjölgun
Sumar- og vetrargræðlingar.
Notkun/nytjar
Í beð, í skjólbelti.
Reynsla
Í tengslum við Lystigarðinn eru til allmargar plöntur úr Alaskasöfnuninni 1985, (A-041-4, A-120(3), A-699 (2), A-215 (3), A-256 (2), A-718), gróðursettar 1990, hafa kalið lítið eitt, að minnsta kosti í byrjun.
Yrki og undirteg.
v. glabra Andersson er með lauf sem eru næstum hárlaus neðan og minna smásagtennt á laufjöðrunum, er líklega blendingur S. pulchra.