Salix arctica

Ættkvísl
Salix
Nafn
arctica
Íslenskt nafn
Fjallavíðir
Ætt
Víðiætt (Salicaceae).
Lífsform
Lauffellandi runni.
Kjörlendi
Sól.
Blómgunartími
Maí-júní.
Hæð
10-20 sm
Vaxtarlag
Jarðlægur runni, allt að 10 sm hár, myndar breiður með rótskeyttum greinum. Árssprotar eru sverir, gljáandi, hárlausir.
Lýsing
Laufin eru heilrend, öfugegglaga-egglaga, þykk, leðurkennd, verða alveg hárlaus, netæðastrengjótt, æðastrengir áberandi á neðra borði. Lauftilkur allt að 3 sm langur, grannur. Axlablöð styttri en laufstilkurinn. Reklar 2-4 sm langir, dökk-purpurarauðir, rekilhlífar, hærðar. Fræflar 2, ekki samvaxnir. Stílar langir.Ɛ
Uppruni
Heimskautahlut Evrópu, Asíu og Ameríku.
Harka
1
Heimildir
= 1
Fjölgun
Sumar- og vetrargræðlingar.
Notkun/nytjar
Sem þekjuplanta, í þyrpingar, í beð, í steinhæðir.
Reynsla
Harðgerður smárunni, algengur um allt land. Gamla nafnið á íslensku plöntunum er Salix callicarpea en það er ekki samnefni.
Yrki og undirteg.
S. arctica var. petraea Anderss. Stönglar oft niðurgrafnir, árssprotar gulir. (= 1)