Salix arctophila

Ættkvísl
Salix
Nafn
arctophila
Íslenskt nafn
Grænlandsvíðir
Ætt
Víðiætt (Salicaceae).
Lífsform
Lauffellandi runni.
Kjörlendi
Sól.
Blómgunartími
Maí-júní.
Hæð
3-15 sm
Vaxtarlag
Lauffellandi, jarðlægur runni með dökkar, skriðular greinar.
Lýsing
Laufin eru dökkgræn og glansandi á efra borði, ljós-blágræn á því neðra, oddbaugótt til öfugegglaga, bogadregin í oddinn eða dálítið ydd, hárlaus, heilrend eða í grundvallaratriðum heilrend. Reklar uppréttir á laufóttum legg, stoðblöð öfugegglaga, purpura eða svartleit við oddinn. Fræhýði oft rauðleit, dúnhærð eða (f. leiocarpa (Anderss.) Fern. (S.arctica ssp. groenlandica v. leiocarpa Anderss. ) hárlaus með 1-1,5 mm langa stíla, kirtill stuttur og breiður, um hálf lengd blómleggsins.&
Uppruni
V & A Grænland.
Heimildir
= 23
Fjölgun
Sáning, sumargræðlingar, sveiggræðsla.
Notkun/nytjar
Í steinhæðir.
Reynsla
Í Lystigarðinum er til ein gömul planta frá Grænlandi, þrífst vel og önnur frá 1995 sem líka þrífst vel, kelur ekkert.