Salix argyrocarpa

Ættkvísl
Salix
Nafn
argyrocarpa
Íslenskt nafn
Glansvíðir
Ætt
Víðiætt (Salicaceae).
Lífsform
Lauffellandi runni.
Kjörlendi
Sól.
Blómalitur
Frjóhnappar purpuralitir verða gulir.
Blómgunartími
Júní-ágúst.
Hæð
0,5-1,7 m
Vaxtarlag
Greinar rauðbrúnar eða brúnleitar, ekki eða mjög lítt bláleitar (mjög mikið glansandi), dúnhærðar eða verða hárlausar. Ársprotar gulbrúnir eða rauðbrúnir, ögn dúnhærðir.
Lýsing
Axlablöð engin eða mjög smá við fyrstu laufin. Laufleggir með grunna gróp á efra borði, 3-8 mm, (stundum með kirtla efst) dúnhærð á efra borði, stærstu laufblöðkurnar mjó-oddbaugóttar, mjó-aflangar eða öfuglensulaga, 25-65 x 7-15 mm, grunnur fleyglaga eða bogadreginn, jaðrar mjög innundnir, heilir eða bogtenntir, (kirtlar undir jaðrinum eða ofan á blöðkunni), laufin hvassydd, bogadregin eða odddregin. Laufin eru bláleit á neðra borði, (stundum hulin hárum), hærð eða með þétt silkihár eða ullhærð, (aðalæðastrengur gulur, áberandi, hárlaus eða dúnhærður), hærð (hvít, stundum líka ryðlit), bein eða bylgjuð, dálítið gljáandi á efra borði, hárlaus eða lítið eitt dúnhærð einkum á miðstrengnum, (hárin hvít, stundum líka ryðlit) jaðrar grunnlaufa heilir, ungar blöðkur gullgrænar, lítt til nokkuð þétt lang-silkihærðar neðan, hárin hvít. Reklar koma um leið og laufin, karlblóm stinn eða hálf-kúlulaga, 10-21,5 x 6-10 mm, blómgreinar 1-8 mm, kvenblóm þétt eða í meðallagi þéttblóma, stinn til hálf-kúlulaga, 11-20,5(-25 með aldinum) x 5,5-17 mm, blómgreinar 1-13 mm, stoðblöð móleit, brún eða tvílit, 0,7-1,2 mm, bogadregin í oddinn, hærð á ytra borði, hárin bein. Karlblóm með hunangskirtil 0-0,6 mm að neðan, að ofan er hunangskirtillinn aflangur, mjóaflangur eða ferhyrndur, 0,4-1 mm, hunangskirtlar oftast strjálir, (stundum skálmyndaðir), frjóþræðir strjálir, frjóhnappar purpuralitir verða gulir, 0,4-0,5 mm langir. Fræva er með mjó-aflanga, aflanga eða kantaða hungnagskirtla á efra borði 0,3-1,1 mm, eggleg perulaga, trjóna mjókkar smám saman í stílinn, eggbú 12-13 í hverju egglegi, stíll 0,4-0,9 mm langir. Fræhýði 2-4 mm löng.&
Uppruni
NA N-Ameríka (fjöll).
Heimildir
= www.efloras.org/florataxon.aspx?flora-id=1&taxon-id=242445641, www.maine.gov/dacf/mnap/features/salixarg.htm,
Fjölgun
Sumar- og vetrargræðlingar.
Notkun/nytjar
Í beð. Er stundum ruglað við Salix glauca.
Reynsla
Í Lystigarðinum er til ein planta/græðlingur frá 1983, þrífst vel, kelur lítið.