Salix barrattiana

Ættkvísl
Salix
Nafn
barrattiana
Yrki form
'Bústi'
Íslenskt nafn
Þústavíðir
Ætt
Víðiætt (Salicaceae).
Samheiti
S. albertana Rowlee
Lífsform
Lauffellandi runni.
Kjörlendi
Sól.
Blómalitur
Frjóhnappar rauðir.
Blómgunartími
Maí-júní.
Hæð
- 1 m
Vaxtarlag
Lauffellandi runni, allt að 1 m hár. Smágreinar dúnhærðar.
Lýsing
Laufin 4-7 sm löng, þétt silki-dúnhærðar bæði ofan og neðan, oddbaugótt til öfugegglaga eða öfuglensulaga (v. angustifolia Anderss.) ydd, næstum heilrend eða oftast sagtennt, axlablöð stutt og breið, næstum hárlaus, kirtilrandhærð, stundum langæ (v. marcescens Raup). Blaðstilkar 5-14 mm. Reklar legglausir, uppréttir, koma á undan laufunum. Stoðblöð ydd, svört, silkihærð. Fræhýði hvít-silkihærð. Fræflar 2, frjóþræðir hárlausir. Sérbýli. Kvenreklar 4-9 sm að lengd en karlreklar 2-5 sm með fallegum rauðum frjóhnöppum.&
Uppruni
Alaska.
Heimildir
= Jun.23
Fjölgun
Sumar- og vetrargræðlingar.
Notkun/nytjar
Í stórar steinhæðir, í þyrpingar, í beð.
Reynsla
Harðgerð planta. 'Bústi' er úrval úr söfnunarferð Alaska 1985.