Salix bebbiana

Ættkvísl
Salix
Nafn
bebbiana
Íslenskt nafn
Bitvíðir
Ætt
Víðiætt (Salicaceae).
Samheiti
S. rostrata. non Thuill. S. livida rostrata. (Richards.)Dipp. S. depressa rostrata. (Richards.)Hiito
Lífsform
Lauffellandi runni.
Kjörlendi
Sól.
Blómgunartími
Apríl-maí.
Hæð
2-5(-7) m
Vaxtarhraði
Hraðvaxta.
Vaxtarlag
Lauffellandi runni, allt að 7 m hár í heimkynnum sínum.Greinar gleiðar, stundum ± brothættar við grunninn, gulbrúnar til rauðbrúnar, ekki eða mjög daufbláleitar, langhærðar eða verða hárlausar, viður sem hefur flagnað er langrákóttur, allt að 25 mm. Ársprotar gulgrænir eða rauðbrúnir, í meðallagi þétthullhærðir til mjög þéttullhærð eða verða hárlausir með aldrinum.
Lýsing
Axlablöð mjög smá eða engin við fyrstu laufin, hvassydd, odddregin eða bogadregin. Laufleggur hvelfdur til flatur á efra borði, 2-5,5-13 mm, dúnhærð á efra borði, stærstu laufblöðkurnar mjó-aflangar, mjó-oddbaugóttar, oddbaugóttar, öfuglensulaga eða öfugegglaga, 20-44-87 x 10-16-45 mm, grunnur fleyglaga eða bogadreginn, jaðrar flatir, heilir, bogtenntir eða óreglulega sagtenntir, kirtlar neðan á jöðrunum, oddur hvass, langyddur eða bogadreginn. Neðra borð bláleitt, meðalþéttdúnhært eða lang-silkihært eða verður hárlaust með aldrinum, hárin hvít eða grá, bylgjuð, með fínlegt, djúplægt æðanet á efra borði, mött til ögn glansandi, í meðallagi þéttdúnhærð, örlítið stutt-silkihærð eða verða hárlaus með aldrinum hárin hvít eða grá. Jaðrar grunnlaufa heilir með kirtildoppur. Ung lauf gulgræn eða rauðleit, langhærð eða lítið eitttil í meðallagi þétt-lóhærð eða langsilkihærð á neðra borði, hárin hvít.Karlreklar koma rétt á undan laufinu, kvenreklar á sama tíma og laufin. Karlreklar kröftugir til kúlulaga, 10-42 x 7-16 mm. Blómskipunarleggir 0,5-11 mm langir. Kvenreklar strjálblóma, kröftugir, grannir eða hálfkúlulaga, 16,5-85 x 9-32 mm, blómskipunarleggir 1-26 mm, stoðblöð blóma gulbrún, 1,2-3,2 mm, oddur bogadreginn, neðra borð hært eða verður hárlaust með aldrinum, hárin bein eða bylgjuð. Hunangskirtill karlblóma aflangur eða egglaga, 0,3-0,8 mm, frjóþræðir ekki samvaxnir eða samvaxnir næstum hálfa lengdina, hárlausir eða hærðir á neðsta 1/2 hlutanum. Fræflar gulir eða purpuralitir en verða gulir, oddvala eða stutt-sívalir, 0,5-0,8 mm langir.Hunangskirtill kvenblóma aflangur eða ferkantaður, 0,3-0,8 mm, eggleg öfugkylfulaga, trjóna ögn útblásin neðan við stílinn (stíllinn með langa trjónu), eggbú 6-16 í hverju egglegi. Stíll 0,1-0,4 mm, fræni mjó- eða breið-sívalar. Fræhýði 5-9 mm löng.Ɛ
Uppruni
Nýfundnaland til Alaska, suður til Kaliforníu.
Harka
3.Jul
Heimildir
= www.efloras.org/florataxon.aspx?flora-id=1&taxon-id=242445657, www.pfaf.org/user/plant.aspx?LatinName=Salix+bebbiana,
Fjölgun
Sumar- og vetrargræðlingar. Fræi sáð um leið og það er þroskað.
Notkun/nytjar
Í þyrpingar, sem stakstæður runni, í beð.
Reynsla
Nokkur eintök til úr Alaskasöfnun 1985. Yfirleitt nokkuð miskalin (K:0-3.5). Í Lystigarðinum er til ein planta frá 1980 undir samnefninu S. xerophila Flod., kelur lítið eða ekkert. Miðað við útbeiðslusvæði ætti að vera leikur einn að finna staðbrigði sem hentaði hérlendis.