Salix caprea

Ættkvísl
Salix
Nafn
caprea
Íslenskt nafn
Selja
Ætt
Víðiætt (Salicaceae).
Samheiti
S. caprea L. ssp. sericea (Anderss.) Flod
Lífsform
Lauffellandi tré.
Kjörlendi
Sól.
Blómalitur
Karlblóm gullgul.
Blómgunartími
Maí-júní.
Hæð
5-8 (-10 m)
Vaxtarlag
Stór runni eða lítið tré, allt að 10 m hátt. Ársprotar stinnir, dúnhærðir í fyrstu, verða fljótt hárlausir, gulbrúnir, oddur bruma oft útsveigður. Brum rekla stærri en hin.
Lýsing
Laufin 12x8 sm, tennt eða sagtennt, breið oddbaugótt-öfugegglaga, dökkgræn verða hárlaus ofan, grágræn, hærð neðan. Laufleggur 1-2,5 sm, stinnur, axlablöð hálfhjartalaga. Reklar þéttir, næstum legglausir, allt að 2,5x2 sm, eggvala-sívalir. Frjóhnappar gullgulir.Karlplöntur til muna fallegri en kvenkyns einstaklingar á blómgunartímanum.
Uppruni
Evrópa til NA Asía.
Harka
5
Heimildir
= 1, H.Kr. 2010 Íslenska plöntuhandbókin.
Fjölgun
Sáning, (sumargræðlingar).
Notkun/nytjar
Sem stakstætt tré, í þyrpingar, í skjólbelti.
Reynsla
Harðgerð og nokkuð breytileg tegund. Falleg eintök í Lystigarðinum með uppruna frá N Noregi - komu undir S. caprea ssp. sericea og voru þessi eintök undir því nafni um tíma og þá nefnd fjallaselja. Skv. Nordisk Flora er það nafn talið samheiti í dag.
Útbreiðsla
Selja er ræktuð víða og sáir sér auðveldlega.