Salix fragilis

Ættkvísl
Salix
Nafn
fragilis
Yrki form
'Bullata'
Íslenskt nafn
Hrökkvíðir
Ætt
Víðiætt (Salicaceae).
Lífsform
Lauffellandi tré eða runni.
Kjörlendi
Sól til hálfskuggi.
Blómgunartími
Vor.
Hæð
3-6 m
Vaxtarlag
Lauffellandi tré, allt að 25 m hátt í heimhynnum sínum. Börkurinn grár, með grópir þegar hann eldist. Ársprotar hárlausir, ólífubrúnir, brotnar auðveldlega á samskeytum.
Lýsing
Lauf 9-13 x 1,5-3 sm, lensulaga, oddur oft ósamhverfur, verða hárlaus með aldrinum, dökkgræn ofan, bláleit neðan, gróf kirtilsagtennt. Laufleggir 5-15 mm með 2 kirtlar efst. Axlablöð kirtilsagtennt, skammæ. Reklarnir koma um leið og laufin, drúpandi, 3-7 sm langir. Fræflar 2-3, ekki samvaxnir. Eggleg næstum legglaus, hárlaus. Salix fragilis 'Bullata' er stór runni eða lítið tré, kröftugur vöxtur, 3-6 m, gulgrænn nýgróður, laufin lensulaga og dökkgræn, fallegir, stórir reklar fyrir laufgun.&
Uppruni
Evrópa, N Asía, hefur numið land í N Ameríku.
Harka
Z3
Heimildir
1, www.bluesem.ca/salix-fragilis-bullata.htm
Fjölgun
Sumar- og vetrargræðlingar.
Notkun/nytjar
Í beð, í raðir.
Reynsla
Ekki til í Lystigarðinum. Myndirnar eru teknar í Grasagarði Reykjavíkur. Þrífst vel þar.