Salix glauca

Ættkvísl
Salix
Nafn
glauca
Íslenskt nafn
Rjúpuvíðir
Ætt
Víðiætt (Salicaceae).
Lífsform
Lauffellandi runni.
Kjörlendi
Sól.
Blómgunartími
Júní.
Hæð
-1 m
Vaxtarlag
Lauffellandi, uppréttur runni, allt að 1 m hár. Árssprotar dökkrauðir og hærðir á unga aldri en grábrúnir og knýttir og hárlausir með aldrinum.
Lýsing
Lauf allt að 4,5-8 sm að lengd og 1,2-3,9 sm á breidd, öfugegglaga eða öfuglensulaga, þunn, heilrend, skærgræn á efra borði en blágræn á því neðra og þétt dúnhærð, sérstaklega á unga aldri, með 5-6 æðastrengjapör. Laufleggur allt að 15 mm langur, engin axlablöð. Reklar stinnir og vaxa um leið og laufin. Karlblóm með 1 hunangakirtil, 2 fræflar, kvenblóm með 1 hunangskirtil, eggleg grá-dúnhærð.&
Uppruni
N Evrópa, N Asía, NV Ameríka.
Harka
2
Heimildir
= 1
Fjölgun
Sumar- og vetrargræðlingar, (sáning).
Notkun/nytjar
Í þyrpingar, í brekkur, í steinhæðir.
Reynsla
Í Lystigarðinu er til 1 planta frá 1978, önnur frá 1984 tvær frá 1985 (frá Alaska) og þrjár frá 2010 (frá Grænland). Allar þrífast vel. Harðgerð og auðræktuð tegund.