Salix hookeriana

Ættkvísl
Salix
Nafn
hookeriana
Íslenskt nafn
Jörvavíðir
Ætt
Víðiætt (Salicaceae).
Lífsform
Lauffellandi runni.
Kjörlendi
Sól en alls ekki skuggi.
Blómgunartími
Apríl-maí.
Hæð
-1 m
Vaxtarhraði
Hraðvaxta.
Vaxtarlag
Lauffellandi runni, allt að 1 m hár. Greinar stundum jarðlægar, ársprotar ullhærðir.
Lýsing
Laufblöð 5-15 sm, egglaga til breiðegglaga, hvít-dúnhærð þegar þau eru ung en verða síðar hárlaus, dökkgræn á efra borði, blágræn á því neðra, heilrend til fíntennt, laufleggir 5-15 mm langir. Reklar á mjög stuttum laufuðum stilkum, kvk 8-12 sm langir, eggleg hárlaust, kk 3-5 sm langir.&
Uppruni
NV N - Ameríka.
Harka
6
Heimildir
= 1, www.pfaf.org/user/Plant.aspx?LatinName=Salix+hookeriana
Fjölgun
Sumar og vetrargræðlingar, (sáning).
Notkun/nytjar
Í kanta, í steinhæðir, í ker, í kassa. Jörvavíðir vex meðfram sjávarflæðum, en einnig á sandöldum við sjávarstrendur, og meðfram lækjum, tjarnir og flóum við ströndina. Þolir saltágjöf.
Reynsla
Hefur reynst svona þokkalega í garðinum. Eintak frá Óla Val úr Alaskasöfnun 1985 er best (S07-17). K:0-2 það er nokkuð miskalin milli ára. Einnig til klónn frá Tumastöðum Salix hookeriana "Sandi", en hann er með kal frá 0-4.5 - það er. mjög miskalinn frá ári til árs.