Salix myrsinites

Ættkvísl
Salix
Nafn
myrsinites
Íslenskt nafn
Myrtuvíðir
Ætt
Víðiætt (Salicaceae).
Lífsform
Lauffellandi runni.
Kjörlendi
Sól.
Blómalitur
Rauðpurpura frjóhnappar, mattpurpura reklar. Kvenblómskipun svart-rauð.
Blómgunartími
Vor.
Hæð
45-60 (-100) sm
Vaxtarhraði
Hægvaxta.
Vaxtarlag
Jarðlægur eða uppsveigður runni, allt að 60 sm hár. Greinar grannar, gljáandi, dúnhærðar, verða hárlausar, með stöku stutt hár þegar þær eru orðnar hárlausar, kræklóttar, verða dökkbrúnar með aldrinum.
Lýsing
Lauf 1-5 sm, kringluleit-egglaga, 2,5-5 x 1-2,5 sm, seig / leðurkennd, skærgræn, glansandi bæði ofan og neðan, kirtiltennt. Laufleggur stuttur. Dauð lauf frá fyrra ári hanga á runnanum. Reklar dökkpurpura, 2,5 sm, þéttir, sívalir, koma um leið og laufið. Kvenreklar mattpurpura, allt að 5 x 2 sm, fræflar með rauðpurpura frjóhnappa og frjóþræði, rekilhlífar með brúnpurpura hæringu.&
Uppruni
N & A Evrópa, V Asía.
Harka
5
Heimildir
= 1, encyclopedia.alpinegardensociety.net/plant/Salix/myrsinites, www.luontoportti./com/suomi/en/puut/whorle-leaved-willow,
Fjölgun
Sumar- og vetrargræðlingar, fræi er sáð um leið og það er fullþroskað.
Notkun/nytjar
Í þyrpingar, í raðir, í stórar steinhæðir. Karl- og kvenblóm sitt á hvorri plöntunni. Lifir í allt að 1750 m h.y.s. í Skandinavíu.
Reynsla
Í Lystigarðinum er til ein gömul planta og önnur frá 1995 úr gróðrarstöð, kala ekkert, eru mjög fallegar. Hefur verið alllengi í ræktun hérlendis og reynst vel.