Salix nivalis

Ættkvísl
Salix
Nafn
nivalis
Íslenskt nafn
Snævíðir*
Ætt
Víðiætt (Salicaceae).
Samheiti
Salix nivalis var. saximontana (Rydberg) C. K. Schneider; S. reticulata Linnaeus subsp. nivalis (Hooker) Á. Löve, D. Löve & B. M. Kapoor; S. reticulata var. saximontana (Rydberg) Kelso
Lífsform
Lauffellandi runni.
Kjörlendi
Sól.
Blómgunartími
Júní-ágúst.
Hæð
10-40 sm
Vaxtarlag
Dvergvaxinn runni, 10-40 sm hár, sem myndar breiður. Sprotarnir skríðandi eða uppréttir, greinarnar gulbrúnar eða rauðbrúnar, hárlausar eða dúnhærðar. Ársprotar gulbrúnir eða rauðbrúnir, hárlausir eða með löng, mjúk hár.
Lýsing
Engin axlablöð eða mjög smá. Laufleggur 1,5-6 mm (stundum með kirtla efst eða alla leið), stærstu laufblöðkurnar eru með loftaugu bæði á efra og neðra borði, æðastrengir djúplægir-netæðóttir, 2 pör af hliðaræðum við eða rétt við grunninn, (sveigðir að oddinum), oddbaugótt eða breiðoddbaugótt, 6-22 x 4-15 mm, 1,1-2,8 sinnum lengri en blaðkan er breið, kúptur, bogadreginn grunnur, hálf-hjartalaga eða fleyglaga, jaðrar dálítið niðurorpnir, heilrendir (með kirtildoppur), oddur kúptur, bogadreginn eða oddnuminn, neðra borð hárlaust eða með löng silkihár, ögn glansandi á efra borði, hárlaus, miðhluti blöðkunnar heilrendur, ungar blöðkur hárlausar. Karlreklar 7-19 x 2,5-6 mm, blómleggir 0,5-17 mm, kvenreklar þétt- eða strjálblóma (4-17 blóma) kröftugir, hálf-kúlulaga eða kúlulaga, 7-21 x 2-9 mm, blómleggir 1-10 mm, stoðblöð blómanna gulbrún eða ljósbleik, 0,8-1,8 mm, bogadregin í oddinn, heilrend, hárlaus á ytra borði. Hunangskirtill á ytra borði karlblóma 0,5-1,3 mm, hunangskirtill á innra borði mjó-aflangur, aflangur eða kantaður, 0,5-1,2 mm, hunangskirtlar samvaxnir og bollalaga, frjóþræðir afmarkaðir, hárlausir eða með hár neðst. Frjóhnappar sporvala eða stutt-sívalir, 0,4-0,6 mm. Hunangskirtill á ytra borði kvenblóma (0)0,2-0,5 mm, hunangskirtill á innra borði 0,2-1 mm, lengri en leggur egglegsins, hunangskirtlar ekki samvaxnir eða samvaxnir og grunn-bollalaga, leggur egglegs 0-0,8 mm, eggleg öfugkuðungslaga, stutt-silkihærð, hár flöt, trjóna mjókkar snögglega að stílnum, eggbú 8-10 í hverju egglegi, stílar ekki samvaxnir eða samvaxnir til hálfs, 0,2-0,4 mm. Fræni eru flöt, ekki nöbbótt á ytra borði með bogadreginn odd, 0,2-0,26-0,36 mm. Fræhýði 3-4 mm.&
Uppruni
V N-Ameríka.
Heimildir
= www.efloras.org/florataxon.aspx?flora-id=1&taxon-1d=242445803
Fjölgun
Sumar- og vetrargræðlingar.
Notkun/nytjar
Í steinhæðir. Náttúrulegir vaxtarstaðir eru túndra, vatnsbakkar, skriður, melar.
Reynsla
Í Lystigarðinum er til ein gömul planta undir þessu nafni, kelur ekkert.