Salix phylicifolia

Ættkvísl
Salix
Nafn
phylicifolia
Íslenskt nafn
Gulvíðir
Ætt
Víðiætt (Salicaceae).
Lífsform
Lauffellandi runni.
Kjörlendi
Sól.
Blómalitur
Frjóhnappar gulir, verða rauðleitir.
Blómgunartími
Maí-júní.
Hæð
1-3 m
Vaxtarlag
Uppréttur, lauffellandi runni, yfirleitt ekki meira en 1-2 m hár. Ársprotar stuttir, aðeins hærðir í fyrstu, verða seinna gulbrúnir og glansandi.
Lýsing
Lauf þykk, oddbaugótt-öfugegglaga til lensulaga, 3-5(-8) sm löng, ydd, heilrend til bogsagtennt, grunnur fleyglaga til bogadreginn, skærgræn ofan og gljáandi, neðan blágræn til grágræn, hárlaus, laufleggur um 1 sm langur. Axlablöð hálf-hjartalaga. Reklar koma á undan laufinu eða um leið og það, karlreklar allt að 2,5 sm langir, kvenreklar 6 sm langir þegar þeir eru fullþroskaðir. Fræflar 2, frjóþræðir hárlausir, frjóhnappar gulir, verða seinna rauðleitir. Fullþroskað hýði egg-keilulaga, hærðir.
Uppruni
Evrópa til NA Asía.
Heimildir
= 1, 7
Fjölgun
Sumargræðlingar, sáning.
Notkun/nytjar
Í limgerði, í raðir, í þyrpingar.
Reynsla
Í Lystigarðinum eru til gamlar plöntur sem þrífast vel, kala ekkert, enda íslenskar. Einnig er til planta undir nafninu S. phylicifolia 'Glitvíðir', falleg planta sem kelur mjög lítið svo og S. phylicifolia 'Strandir', planta sem er komin úr gróðrarstöð kelur lítið sem ekkert.