Salix udensis

Ættkvísl
Salix
Nafn
udensis
Íslenskt nafn
Bolvíðir
Ætt
Víðiætt (Salicaceae).
Samheiti
Salix sachalinensis F. Schnmidt
Lífsform
Lauffellandi runni.
Kjörlendi
Sól eða dálítill skuggi.
Blómgunartími
Apríl-maí.
Hæð
Allt að 5 m
Vaxtarlag
Lauffellandi, kröftugur runni allt að 5 m hár eða hærri.
Lýsing
Laufin mjó, lensulaga, 6-10 sm löng og 0,8-2 sm breið, gljáandi dökk græn ofan, bláleit og ögn hærð á neðra borði, jaðrar sagtenntir. Blómin koma snemma vors, reklar 2-3 sm langir.
Uppruni
NA Asía, A Síbería (Kamshatka), NA Kína & N Japan.
Heimildir
en.wikipwdia.org/Wiki/Salix-udensis, www.bluestem.ca/salix-udensis-sekka.htm, www.bluebellnursery.com/catalogue/trees/Salix/S/2452
Fjölgun
Sumar- og vetrargræðlingar.
Notkun/nytjar
Trjá og runnabeð. Náttúrulegur vaxtarstaður er meðfram vötnum.
Reynsla
Í Lystigarðinum eru til fimm plöntur úr Síberíusöfnun undir þessu nafni (SÍB-12-13, SÍB-12-07, SÍB-10-09, SÍB-12-14(2). Allar hafa kalið mjög mikið.
Yrki og undirteg.
Yrkið 'Sekka' er ræktað sem skrautplanta, er með greinar í knippi. Greinarnar samsettar óeðlilega og greinar flatar það er eru vænglaga. Ræktað í Japan.