Salix x smithiana

Ættkvísl
Salix
Nafn
x smithiana
Íslenskt nafn
Vesturbæjarvíðir
Ætt
Víðiætt (Salicaceae).
Samheiti
Óljóst hver foreldrin eru, hugsanlega eiga S. cinerea og S. viminalis hlut að máli.
Lífsform
Lauffellandi runni.
Kjörlendi
Sól.
Blómgunartími
Apríl-maí.
Hæð
Allt að 9 m
Vaxtarlag
Lauffellandi runni allt að 9 m hár. Ársprotar þétthærðir í fyrstu, hárlausir á öðru ári, rauðbrúnir, annars árs viður hryggjóttur undir berkinum.
Lýsing
Lauf 6-11 x 1-2,5 sm, mjólensulaga, mattgræn en verða hárlaus ofan, grádúnhærð, verða næstum hárlaus neðan, jaðar uppvafinn, lítið eitt sagtennt. Laufleggur sterklegur, 3-13 mm. Axlablöð eyrnalaga. Reklar margir, margir saman efst á greinunum, koma á undan laufinu. Kvenreklar 3 x 1 sm, eggleg hærð, með legg. Karlreklar styttri og sverari, sjaldgæfari. Frjóþræðir allt að 8 mm langir.
Uppruni
Evrópa.
Heimildir
= 1, www.pfaf.org/user/Plant.aspx?LatinName=Salix+x+smithiana,
Fjölgun
Fræi er sáð um leið og það er þroskað. Sumar- og vetrargræðlingar.
Notkun/nytjar
Í runnabeð.
Reynsla
Í Lystigarðinum er til ein planta, hefur alltaf kali eitthvað hvert einasta ár.