Salvia officinalis

Ættkvísl
Salvia
Nafn
officinalis
Íslenskt nafn
Lyfjasalvía
Ætt
Varablómaætt (Lamiaceae).
Lífsform
Fjölær runni.
Kjörlendi
Sól.
Blómalitur
Hvítur til bleikur, eða fjólublár til purpura.
Blómgunartími
Júlí-ágúst.
Hæð
50-80 sm
Vaxtarlag
Fjölær runni, allt að 80 sm hár. Stönglar uppréttir, mikið greindir, 4-kantaðir, hvítdúnhærðir eða lóhærðir.
Lýsing
Laufin allt að 55 x 15 sm, með legg, óskipt, aflöng til oddbaugótt, grunnur snubbóttur eða mjókka smám saman í oddinn og stöku sinnum grunnflipótt, heilrend, hrukkótt, hvít-dúnhærð, einkum á neðra borði, laufleggir allt að 2,5 sm. Blóm í 4-20 blóma krönsum, um það bil, í meira eða minna ógreindum klösum, blómleggir allt að 3 mm, stoðblöð egglaga, mjóhvassydd, himnukennd. Bikar allt að 14 mm, bjöllulaga, kirtil-pikkaður og dúnhærður, tennur sýllaga til mjó-hvassyddar. Krónan hvít eða bleik til fjólublá eða purpura. Pípan allt að 15 mm, efri vörin allt að 1 sm. Aldin allt að 2 x 1 mm, grá.
Uppruni
Miðjarðarhafssvæðið, N Afríka.
Harka
5
Heimildir
= 1
Fjölgun
Skipting, sáning.
Notkun/nytjar
Sem krydd og lækninga, til afskurðar.
Reynsla
Gömul krydd og lækningajurt sem stundum er ræktuð í sólreitum og/eða köldum gróðurskálum og getur þrifist úti á allra bestu stöðum.
Yrki og undirteg.
'Albiflora', 'Rubriflora'.