Salvia virgata

Ættkvísl
Salvia
Nafn
virgata
Íslenskt nafn
Kósakkasalvía
Ætt
Varablómaætt (Lamiaceae).
Lífsform
Fjölær jurt.
Kjörlendi
Sól.
Blómalitur
Ljóslilla til fjólublár eða purpura, sjaldan hvítur.
Blómgunartími
Ágúst.
Hæð
-100 sm
Vaxtarlag
Fjölær jurt, allt að 100 sm há. Stönglar uppréttir, greindir eða ógreindir, dúnhærðir.
Lýsing
Lauf allt að 30 x 15 sm, með lauflegg, óskipt, egglaga eða lensulaga til aflöng, grunnur gegnvaxinn (efri) eða hjartalaga, jaðar næstum heilrendur til skörðóttur eða trosnaður, hrukkótt og kirtil-dúnhærð. laufleggir allt að 15 sm. Blóm í 2-6 blóma krönsum, strjál, í ógreindum eða greinóttum skúfum eða klösum, blómleggir allt að 3 mm. Stoðblöð allt að 8 x 6 mm, egglaga, mjó-hvassydd, purpura. Bikar allt að 1 sm, pípulaga eða bjöllulaga, víkkar út þegar aldinið þroskast, kirtil-dúnhærð, purpura, efri vörin sigðlaga, með gróp. Krónan ljóslilla til fjólublá eða purpura eða stöku sinnum hvít, pípan allt að 9 mm, nær ekki fram úr blóminu, útvíkkuð efst, efri vörin allt að 7 mm, sigðlaga. Aldin allt að 3 x 2 mm, eggvala.
Uppruni
M Asía.
Harka
7
Heimildir
= 1
Fjölgun
Sáning.
Notkun/nytjar
Í skrautblómabeð.
Reynsla
Ekki í Lystigarðinum. Myndirnar eru teknar í Grasagarði Reykjavíkur.