Sambucus canadensis

Ættkvísl
Sambucus
Nafn
canadensis
Íslenskt nafn
Kanadayllir
Ætt
Geitblaðsætt (Caprifoliaceae).
Lífsform
Lauffellandi runni.
Kjörlendi
Sól eða hálfskuggi.
Blómalitur
Beinhvítur
Blómgunartími
Júlí.
Hæð
2,5-3,5 m
Vaxtarhraði
Vex hratt.
Vaxtarlag
Uppréttar, útsveigðar og niðursveigðar greinar. Greinar lítillega blöðróttar, ungar greinar hárlausar.
Lýsing
Lauf stakfjöðruð með 5-11 smáblöðum, yfirleitt 7, smáblöðin að 14 x 6 sm, næstum legglaus, aflöng-egglaga, ydd, skarpsagtennt, neðsta parið með 2-3 sepum, hárlaus eða aðeins ullhærð á neðra borði. Blómin beinhvít í útbreiddri, sveiplaga blómskipan sem verður allt að 20 sm í þvermál. Aldin ber, allt að 5mm í þvermál, purpurasvört.
Uppruni
A N-Ameríka.
Harka
3
Heimildir
= 1
Fjölgun
Sumar og vetrargræðlingar, sáning.
Notkun/nytjar
Í þyrpingar, sem stakstæður runni, í beð, undirgróður undir stærri tré.
Reynsla
Í Lystigarðinum eru til tvær plöntur, önnur sem sáð var til 1986 og gróðursett í beð 1990, kól talsvert framan af, en til hinnar var sáð 1989 og hún gróðursett í beð 1990, kelur oftast mikið. Hefur reynst vel og blómgast árlega í seinni tíð.
Yrki og undirteg.
Nokkur yrki í ræktun erlendis. T.d. 'Acutiloba' með fínskipt fagurgrænt lauf, 'Aurea' með fölgrænt lauf, 'Argenteo Marginata' blöð með silfruðum blaðjöðrum, 'Chlorocarpa' með föl gulgrænu laufi, 'Maxima' kraftmikil, hávaxin, blómskipun allt að 40 sm í þvermál, 'Rubra' með fölrauð aldin. Af þessum yrkjum er einungis 'Aurea' í ræktun í lystigaðinum enn sem komið er.Einnig má telja til S. canadensis v. submollis Rehd. er með lauf sem er mjúkgrádúnhærð á neðra borði.