Sambucus nigra

Ættkvísl
Sambucus
Nafn
nigra
Íslenskt nafn
Svartyllir
Ætt
Geitblaðsætt (Caprifoliaceae).
Lífsform
Lauffellandi runni.
Kjörlendi
Sól-hálfskuggi/skjól.
Blómalitur
Rjómahvítur.
Blómgunartími
Júlí.
Hæð
3-5 m (-9 m)
Vaxtarhraði
Hraðvaxta.
Vaxtarlag
Margstofna runni með sprunginn börk, árssprotar gráleitir með stórum korkvörtum, mergur hvítur.
Lýsing
Blöðin gagnstæð, allt að 30 sm, smáblöð oftast 5 en geta verið 3-9. Smáblöðin langegglaga, hárlaus, hvasstennt, dökkgræn, þefill, 3-10 sm að lengd. Blómin ilmsterk, gulhvít, blómskipun sveiplík, flöt. Aldin gljáandi svört ber, æt. Þokkalega fallegir haustlitir. Ber og blóm oft notuð í lækningaskyni.
Uppruni
Evrópa, Norður Afríka, SV Asía.
Harka
5
Heimildir
= 1
Fjölgun
Vetrar- eða sumargræðlingar, sáning.
Notkun/nytjar
Í blönduð trjá- og runnabeð.
Reynsla
Í Lystigarðinum eru til þrjár plöntur, sem sáð var til 1988 og gróðursettar í beð 1989 og 1990, hafa allta f kalið mikið. Fremur viðkvæm og hefur ekki reynst vel í LA, vex vel yfir sumar en kelur árlega mikið niður (k:4).
Yrki og undirteg.
Fjöldi yrkja í ræktun erlendis sem lítt eða ekki hafa verið reynd hérlendis.