Sanguisorba minor

Ættkvísl
Sanguisorba
Nafn
minor
Íslenskt nafn
Dvergakollur
Ætt
Rósaætt (Rosaceae).
Lífsform
Fjölær jurt.
Kjörlendi
Sól.
Blómalitur
Grænhvítur.
Blómgunartími
Ágúst.
Hæð
20-60 sm
Vaxtarlag
Fjölær jurt, allt að 90 sm há. Stönglar hárlausir eða dúnhærðir.
Lýsing
Laufin með 2-12 smálauf, smálauf allt að 2,2 sm, kringluleit til oddbaugótt, bogtennt til skert-sagtennt, 3-10 tennur á hvorri hlið, laufleggur allt að 5 mm. Blómin í hnöttóttum kollum, allt að 2,5 sm, neðri blómin karlblóm eða tvíkynja, miðblómin tvíkynja, þau efstu eru kvenblóm. Bikarflipar grænir eða grænir með hvítan jaðar, egglaga-aflöng, allt að 3 mm, fræflar 0-30, sjaldan allt að 50, frævur 1-3. Bikarpípa öfugegglaga til hnöttótt, allt að 8 mm, 4-köntuð með lista eða vængi, netæðótt, með óreglulega hryggi eða lóðrétta.
Uppruni
S, V & M Evrópa, N Afríka, SV & M Asía.
Harka
5
Heimildir
= 1
Fjölgun
Skipting, sáning.
Notkun/nytjar
Í steinhæðir, í beðkanta.
Reynsla
Harðgerð og góð steinhæðarplanta.