Sanguisorba officinalis

Ættkvísl
Sanguisorba
Nafn
officinalis
Íslenskt nafn
Blóðkollur
Ætt
Rósaætt (Rosaceae).
Lífsform
Fjölær jurt.
Kjörlendi
Sól.
Blómalitur
Dökkrauður.
Blómgunartími
Ágúst.
Hæð
40-90 sm
Vaxtarlag
Fjölær jurt, allt að 100 sm há.
Lýsing
Jarðstönglar skriðulir, nokkuð stinnir, stönglar uppréttir, greinóttir ofantil, oft rauðir. Stöngullauf smá, legglaus, grunnlauf oftast með 7-25 smálauf, smálaufin allt að 5 x 3,5 sm, aflöng-egglaga eða oddbaugótt, snubbótt, hjartalaga eða þverstýfð við grunninn, hárlaus, dökkgræn og glansandi á efra borði, verða bláleit og daufgræn á neðra borði, sagtennt-tennt, 10-12 tennur á hvorri hlið, langyddar, laufleggur allt að 3 sm, rauður. Blómin dökkrauðbrún eða næstum svarpurpura, tvíkynja, í breiðoddbaugóttum eða stutt-sívölum kollum allt að 3 sm, blómskipunarleggir langir, uppréttir, stoðblöð aflöng-egglaga, himnukennd, brún-dúnhærð. Bikarflipar oddbaugótt eða egglaga. Frjóhnappar smáir, dökkrauðir, frjóþræðir rauðir. Fræni stutt-mjúkhærð. Bikarpípa með stinn snubbótt rif, lítillega vængjuð.
Uppruni
V Evrópa, (Ísland), N Ameríka, Mongólía, Japan, Kína.
Harka
4
Heimildir
= 1
Fjölgun
Skipting, sáning.
Notkun/nytjar
Í fjölæringabeð, í raðir, í þyrpingar.
Reynsla
Þrífst vel í Lystigaðinum. Harðgerð planta, notuð töluvert til lækninga hér áður fyrr.