Saxifraga biflora

Ættkvísl
Saxifraga
Nafn
biflora
Íslenskt nafn
Purpurasteinbrjótur
Ætt
Steinbrjótsætt (Saxifragaceae).
Lífsform
Fjölær, sígræn jurt.
Kjörlendi
Sól.
Blómalitur
Daufpurpura eða hvít.
Blómgunartími
Júní.
Hæð
5-10 sm
Vaxtarlag
Lík vetrarblómi en með mjúk, kjötkennd, næstum kringlótt lauf.
Lýsing
Krónublöð greinilega aðskilin, daufpurpura eða hvít með áberandi gulan hunangshring í miðju blómi.
Uppruni
Alpafjöll (2000-4200m), NV Grikkland.
Harka
6
Heimildir
1,2
Fjölgun
Skipting, sáning.
Notkun/nytjar
Í steinhæðir, í kanta, í ker.
Reynsla
Hefur verið í uppeldi í Lystigarðinum. Reynist oft skammlífur.
Yrki og undirteg.
'Alba' er með hvít blóm.var. kochii Kittel. Krónublöð allt að 9 x 5 mm, oddbaugótt. (1) ssp. biflora. Lauf með 1 kalkkirtil og lítt áberandi kalkútfellingar. Blóm venjulega að minnsta kosti 2 á hverjum stöngli, ná ögn upp úr laufunum. Bikarblöð hærð á neðra borði (2).ssp. epirotica D.A. Webb. Lauf með 3-5 kalkkirtla og áberandi kalkútfellingar. Blóm stök, ná vel upp fyrir laufið. Bikarblöð hárlaus á neðra borði (2).