Saxifraga cotyledon

Ættkvísl
Saxifraga
Nafn
cotyledon
Íslenskt nafn
Klettafrú
Ætt
Steinbrjótsætt (Saxifragaceae).
Lífsform
Fjölær, sígræn jurt.
Kjörlendi
Sól.
Blómalitur
Hvítur.
Blómgunartími
Júlí.
Hæð
15-70 sm (-100 sm)
Vaxtarlag
Aðalblaðhvirfingin 7-12 sm í þvermál, venjulega með nokkrar minni líka, sem vaxa út frá stuttum renglum úr blaðöxlunum eldri hvirfinga, renglurnar deyja fljótt svo plantan myndar aldrei stórar þyrpingar eða þúfur.
Lýsing
Lauf 2-8 x 0,6-2 sm, aflöng til öfuglensulaga eða spaðalaga, jaðrar fíntenntir, tennur reglulegar nema við grunninn þar sem hár kögra jaðarinn. Laufin eru ögn kjötkennd, ekki mjög bláleit, kalkkirtlar ofan á miðju hverrar tannar er með lítieitt af kalkútfellingar.Blómstöngull allt að 70 sm á hæð, greinóttur frá grunni eða að minnsta kosti frá rétt neðn við miðju og mynda pýramídalaga skúf. Aðalgreinin er með 8-40 blóm. Krónublöð 7-10 mm, öfuglensulaga, mjó neðst við nöglina, hvít, stundum með rauðar doppur eða æðar.
Uppruni
Skandinavía & Ísland, Pýreneafjöll & Alpar.
Harka
6
Heimildir
1,2
Fjölgun
Skipting, sáning.
Notkun/nytjar
Í steinhæðir, í hleðslur, í kanta.
Reynsla
Afar glæsileg tegund og harðgerð. Er víða til í görðum. Hérlendis vex hún villt aðeins á Austurfjörðum og Suðausturlandi og er nokkuð víða á því svæði.
Yrki og undirteg.
Yrki sem nefnd eru í RHS'Caterhamensis' Allt að 90 sm há, blóm hvít, rauðdröfnótt.'Icelandica' Allt að 105 sm há, stórar, flatar blaðhvirfingar, lauf bronslit, leðurkennd.'Montavonensis' Er form með breið lauf og dálítið minni að öllu leyti en aðaltegundin, einkum blómin. Heimkynni: M Alpar. samkv. Köhlein, Saxifrages)'Norvegica' Er með spaðalaga lauf, blómskipun með fjölmörgum hliðargreinum sem bera allt að 20 blóm hver, blóm hreinhvít.'Pyramidalis' Stórfenglag pýramídalaga blómskipun, greinótt næstum frá grunni, blaðhvirfingarlauf lengri og mjórri en á aðaltegundinni og plantan þarf meiri vökvun. (Köhlein, Saxifrages).'Southside Seedling' Er með rauð blóm, krónublöð með hvítum doppum og jöðrum.