Saxifraga crustata

Ættkvísl
Saxifraga
Nafn
crustata
Íslenskt nafn
Skorpusteinbrjótur
Ætt
Steinbrjótsætt (Saxifragaceae).
Lífsform
Fjölær, sígræn jurt
Kjörlendi
Sól
Blómalitur
Gulhvítur
Blómgunartími
Júlí
Hæð
12-35 sm
Vaxtarlag
Blaðhvirfingar 2,5-8 sm í þvermál, mynda þykkar, þéttar þúfur.
Lýsing
Hvirfingalaufin 10-25 x 2-3 mm, bandlaga, snubbótt, heilrend eða ógreinilega bogtennt, niðursveigð, stundum með fá, löng jaðarhár við grunninn, með kalkkirtla, kalkkirtlar fjölmargir á kafi í blaðjöðrum. Kalkútfellingar áberandi. Stöngullaufin áþekk en miklu minni.Blómstönglar 12-35 sm, kirtilhærðir, greinóttir, mynda skúf með allt að 35 blómum, hver smágrein yfirleitt með 1-3 blóm, þétt saman á endanum. Krónublöð 5-6 mm, öfugegglaga, hvít, sjaldan með rauðar doppur.
Uppruni
A Alpar, N & M gamla Júgóslavía.
Harka
6
Heimildir
1,2
Fjölgun
Skipting, sáning.
Notkun/nytjar
Í steinhæðir, í fjölæringabeð, í kanta.
Reynsla
Harðgerð, þrífst vel Norðanlands.