Saxifraga cuneifolia

Ættkvísl
Saxifraga
Nafn
cuneifolia
Íslenskt nafn
Rökkursteinbrjótur
Ætt
Steinbrjótsætt (Saxifragaceae).
Lífsform
Fjölær jurt.
Kjörlendi
Hálfskuggi (sól).
Blómalitur
Hvítur/gul í grunn, stundum rauðir blettir.
Blómgunartími
Júní-júlí.
Hæð
8-20 sm
Vaxtarlag
Fíngerður, blaðhvirfingar mynda lausar breiður. Sprotar meira og minna jarðlægir, líkir renglum.
Lýsing
Laufblaðkan 0,8-2.5 x 0,7-2,2 sm, venjulega fleyglaga, breið-egglaga eða næstum kringlótt, endinn oft þverstýfður, tennt, bugtennt eða heilrend með gegnsæjan kant. Laufleggir flatir. 0,4-1,3 x lengri en blaðkan, sem mjókka smám saman í legginn, ögn af hárum er neðst á blöðkunni. Blómstönglar, 10-25 sm með um 12 (3-25) blóm í topp. Krónublöð 3-5,5 mm, aflöng, hvít, oft með gulan blett við grunninn og stundum en þó fremur sjaldan með rauðleitar doppur unálægt miðju.
Uppruni
Pyreneafjöll, Alpafjöll, Karpatafjöll.
Harka
6
Heimildir
1,2
Fjölgun
Skipting, sáning, græðlingar.
Notkun/nytjar
Sem undirgróður, í þekju, í beð.
Reynsla
Harðgerð planta, gömul í Lystigarðinum.
Yrki og undirteg.
ssp. robusta D.A. Webb. Þétt, bil milli blaðhvirfinga yfirleitt innan við 2 sm, lauf að 2,5 sm með blaðstilk, yfirleitt bugtennt. Blómstilkar stinnir, með um 10 blóm hver.