Saxifraga exarata

Ættkvísl
Saxifraga
Nafn
exarata
Íslenskt nafn
Randasteinbrjótur
Ætt
Steinbrjótsætt (Saxifragaceae).
Lífsform
Fjölær jurt.
Kjörlendi
Sól, hálfskuggi.
Blómalitur
Hvítur til gulgrænn, sjaldan rauðmengaður.
Blómgunartími
Júlí-ágúst.
Hæð
10 sm
Vaxtarlag
Myndar þéttar þúfur og þéttar breiður með tímanum.
Lýsing
Lauf 0,4-2 sm (með laufleggum), skipt a.m.k. hálfa leið niður, venjulega í 3 aflanga, snubbótta flipa (stundum eru laufin heil eða með 5-7 sepa), rákótt eða slétt á efra borði, hæring breytileg.Blómstönglar 3-10 sm, með 1-5 blóma klasa, flatan í toppinn. Krónublöð 2,5-6 mm, aflöng eða mjó-oddbaugótt, skarast ekki, hvít til fölgrængul, sjaldan rauðmenguð.
Uppruni
Fjöll M & S Evrópu, Kákasus.
Harka
6
Heimildir
1
Fjölgun
Skipting, sáning.
Notkun/nytjar
Í steinhæðir, í beð, sem undirgróður.
Reynsla
Bæði aðaltegund og undirtegundir hennar þrífast með ágætum í Lystigarðinum.
Yrki og undirteg.
ssp. ampullacea (Tenore) Webb. Lauf heil til 3 flip, fliparnir mjög stuttir, samhliða, leggir ógreinilegir. Blóm 1-3 saman. Heimkynni: M Appennínafjöll.ssp. exarata. Flipar laufavenjulega 3-5, útstæðir, rákóttir á efra borði. Krónublöð 4-6 mm u.þ.b. 1,5 x lengri en þau eru breið, breið-öfugegglaga, hvít eða fölrjómalit. Heimkynni: Alpar, Balkanskagi, Tyrkland, Kákasus. (2)ssp. moschata (Wulfen) Cavillier. Moskussteinbrjótur. Lauf heil eða 3 flipótt, ekki rákótt á efra borði. Krónublöð 3-4 mm, 2 x lengri en breið, aflöng til mjó-oddbaugótt, vel aðskilin, gulleit, (stundum rauðmenguð). Heimkynni: M & S Evrópa, austur í Kákasus (nema Appennínafjöll) og Balkanskagi.