Saxifraga geranioides

Ættkvísl
Saxifraga
Nafn
geranioides
Íslenskt nafn
Storkasteinbrjótur
Ætt
Steinbrjótsætt (Saxifragaceae).
Lífsform
Fjölær, sígræn jurt.
Kjörlendi
Sól, hálfskuggi.
Blómalitur
Hvítur.
Blómgunartími
Júlí.
Hæð
20-30 sm
Vaxtarlag
Myndar gisnar þúfur. Blaðkan um það bil 1,5 x 2,5 sm, hálfkringlótt, djúpskipt í 3 aðalflipa, sem aftur eru flipóttir eða tenntir og mynda 17-25 ydda hluta, ekki rákótt á efra borði, þaktir mjög stuttum kirtilhárum.
Lýsing
Blómstönglar 15-25 sm, endastæðir, greinist venjulega frá miðju,og mynda skúf með allt að 20 blómum. Krónublöð um það bil 1,2 sm, öfuglensulaga, hvít.
Uppruni
Pýreneafjöll, NA Spánn.
Harka
7
Heimildir
1
Fjölgun
Skipting, sáning.
Notkun/nytjar
Í steinhæðir, sem undirgróður, í beð, í breiður.
Reynsla
Hefur verið lengi í ræktun í garðinum (frá 1978). Þarf rakan, súran jarðveg og þrífst best í hálfskugga t.d. norðan eða austan í steinhæð.