Saxifraga granulata

Ættkvísl
Saxifraga
Nafn
granulata
Íslenskt nafn
Kornasteinbrjótur
Ætt
Steinbrjótsætt (Saxifragaceae).
Lífsform
Fjölær jurt.
Kjörlendi
Sól, hálfskuggi.
Blómalitur
Snjóhvítur.
Blómgunartími
Júní.
Hæð
20-30 sm
Vaxtarlag
Fjölær jurt sem myndar blaðhvirfingar, myndar æxlilauka.
Lýsing
Grunnlauf 0,6-2 x 0,8-3 sm, nýrlaga, hjartalaga eða tennt, kirtilhærð að minnsta kosti neðst, ögn kjötkennd. Laufleggur allt að 0,5 sm. Blómstönglar 10-30 sm, oftast stakir, greinóttir og mynda þéttan 4-30 blóma skúf. Krónublöð 7-16 x3-7 mm, öfugegglaga til breiðöfuglensulaga, hvít, sjaldan en þó stundum með rauðum æðum.
Uppruni
Ísland, Evrópa.
Harka
5
Heimildir
1,2
Fjölgun
Skipting, sáning.
Notkun/nytjar
Í steinhæðir, undirgróður, í beð.
Reynsla
Íslensk tegund sem sjaldan er ræktuð í görðum.
Yrki og undirteg.
ssp. granulata Grófgerð planta, grunnlauf 1,2 sm breið. Blómskipunin greinótt, stinn, krónublöð 12 mm.ssp. granitifolia D.A. Webb. Laufin minni, blómstöngull allt að 25 sm.