Saxifraga hirsuta

Ættkvísl
Saxifraga
Nafn
hirsuta
Íslenskt nafn
Dúnsteinbrjótur
Ætt
Steinbrjótsætt (Saxifragaceae).
Lífsform
Fjölær jurt, sígræn.
Kjörlendi
Sól, hálfskuggi.
Blómalitur
Hvítur/ gulir blettir við grunninn / bleikir blettir á miðjunni.
Blómgunartími
Júní-ágúst.
Hæð
10-30 sm
Vaxtarlag
Sígrænn fjölæringur sem myndar skriðular, gisnar hvirfingar upp af jarðlægum sprotum.
Lýsing
Laufblaðkan 1,5-4 x 1-5 sm, nýrlaga til breiðoddbaugótt eða kringlótt, hár að minnsta kosti á efra borði, jaðrar venjulega með 2-3 tungur eða tennur á hvorri hlið, gegnsær kantur, lítt áberandi. Laufleggir yfirleitt 2-3 x lengri en blaðkan, næstum sívalir, hærður allan hringinn.Blómstilklar 12-40 sm háir. Krónublöð 3,5-4 mm, aflöng, hvít en venjulega með gula bletti við grunninn og nokkrar bleikar doppur um miðjunni.
Uppruni
SV Evrópa, SV Írland.
Harka
6
Heimildir
1,2
Fjölgun
Skipting, sáning, græðlingar.
Notkun/nytjar
Sem undirgróður, í beð.
Reynsla
Í garðinum í N11 frá 2003, lifir hér 2015. Þarf jafnan og góðan raka á vaxtartímabilinu.