Saxifraga hostii

Ættkvísl
Saxifraga
Nafn
hostii
Íslenskt nafn
Hagasteinbrjótur
Ætt
Steinbrjótsætt (Saxifragaceae).
Lífsform
Fjölær jurt, sígræn.
Kjörlendi
Sól.
Blómalitur
Hvítur með purpuralitar doppur.
Blómgunartími
Júlí-ágúst.
Hæð
25-50 sm
Vaxtarlag
Sígræn, blaðhvirfingar 6-18 sm í þvermál, myndar gisnar breiður. Lauf 3-10 x 0,4-1 sm, aflöng til breiðbandlaga, ögn breiðari í oddinn, yfirleitt snubbótt, meira og minna bláleit, blaðendar aftursveigðir, jaðrar fíntenntir með kalkkirtla (í holum) á efra borði tannanna, kalkútfellingar áberandi, með nokkur kögurhár neðst við grunninn.
Lýsing
Blómstönglar 25-50 sm langir, kirtilhærðir ofan til, greinóttir ofan miðju og mynda skúf eða puntlíka blómskipun, með 5-12 blóm. Krónublöð 4-8 mm, oddbaugótt, hvít oft með purpuralitar doppur.
Uppruni
A Alpafjöll.
Harka
6
Heimildir
1,2
Fjölgun
Skipting, sáning.
Notkun/nytjar
Í steinhæðir, í beð.
Reynsla
Harðgerð planta sem þrífst vel í garðinum. Í F1-F13 frá 1995, þrífst þar með ágætum.Undirtegundin ssp. rhaetica (Kern.) Braun.-Blanquet. er í J5 frá 1991, bráðfalleg og auðræktuð.
Yrki og undirteg.
ssp. rhaetica (Kern.) Braun.-Blanquet. Grunnlauf allt að 5 x 0,7 sm, mjókka fram í odd, tennur á blaðjöðrum ógreinilegar. Aðalstöngull skúfsins með 3-5 blóm. Heimk.: N Ítalía (2).