Saxifraga hypnoides

Ættkvísl
Saxifraga
Nafn
hypnoides
Íslenskt nafn
Mosasteinbrjótur
Ætt
Steinbrjótsætt (Saxifragaceae).
Lífsform
Fjölær, sígræn jurt.
Kjörlendi
Sól, hálfskuggi.
Blómalitur
Hvítur.
Blómgunartími
Júní-júlí.
Hæð
15-25 sm
Vaxtarlag
Myndar gisnar breiður.
Lýsing
Flest laufin eru heilrend og bandlensulaga á jarðlægu sprotum en 3-7 flipótt og blævængslaga og með breiðan legg á enda hvirfinganna, flipar með þornháralíka enda. Sumardvalarbrum 5-10 x 2-4 mm, stundum í blaðöxlum jarðlægra sprota, ytri brumlauf með breiðan, himnukenndan jaðar og græna miðju. Blómstönglar 5-20 sm, greinóttir ofan til og myndargisinn, 2-7 blóma skúf, knúpparnir eru álútir. Krónublöð 7-12 mm, öfugegglaga, hvít, skarast ekki. Bikarblöð um þriðjungur af lengd krónublaðanna.
Uppruni
NV Evrópa, Ísland.
Harka
6
Heimildir
1
Fjölgun
Skipting, sáning.
Notkun/nytjar
Í steinhæðir, sem undirgróður, í beð.
Reynsla
Auðvelt að flytja í garða. Vex hérlendis í urðum og melum, algeng um allt land.
Yrki og undirteg.
var. luteo-virens = Þórsmerkursteinbrjótur í sumum heimildum, gulblóma (var til í Lystigarðinum).